Skráningu á Íslandsmót lýkur í kvöld
Forkeppni fer fram á tveim völlum dagana 18. – 20. júlí en öll úrslit verða riðin á einum velli 21. – 22. júlí.
Búið er að opna fyrir skráningu á mótið inná www.sportfengur.com og er skráningafrestur til miðnættis 10. júlí.
Skráningargjald er 5000 kr. fyrir barna-, unglinga- og ungmennaflokk auk kappreiðaskeiðgreina og 7500 kr. fyrir fullorðinsflokk.
Eftirfarandi greinar eru í boði:
Meistaraflokkur: fjórgangur V1, fimmgangur F1, tölt T1, tölt T2, gæðingaskeið PP1, 250m skeið P1, 150m skeið P3 og 100m flugskeið P2
Ungmennaflokkur: fjórgangur V1, fimmgangur F1, tölt T1, tölt T2, gæðingaskeið PP1, 100m flugskeið, P2 og fimikeppni A2
Unglingaflokkur: fjórgangur V1, fimmgangur F2, tölt T1, tölt T2, gæðingaskeið PP1, 100m flugskeið P2 og fimikeppni A
Barnaflokkur: fjórgangur V2, tölt T1 og fimikeppni A
Athugið að það er einn keppandi á vellinum í einu nema í fjórgangi barnaflokki og fimmgangi unglingaflokki en í þeim greinum verða 3 inná í einu og riðið eftir þul.
Vakin er athygli á því að í fullorðinsflokki eru einkunnalágmörk í allar greinar. Það er parið, hesturinn og knapinn, sem þurfa að ná lágmörkum (einkunnir parsins mega vera allt að tveggja ára gamlar). Íslandsmótslágmörkin fyrir 2018 má finna hér: https://www.lhhestar.is/is/frettir/islandsmotslagmork-2018
Allar frekari upplýsingar um skráningu fást með að senda tölvupóst á spretturmot@gmail.com eða í síma 888-4050.