Lokaskráningardagur á kynbótasýningar í dag
Sýning verður ekki haldin nema lágmarks fjöldi skráninga náist sem eru 30 hross.
Síðasti skráningar- og greiðsludagur er á miðnætti í kvöld 10. ágúst.
Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að fara inn á heimasíðu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins www.rml.is en þar er valmynd á forsíðunni „skrá á kynbótasýningu“. Á sömu heimasíðu undir kynbótastarf/hrossarækt/kynbótasýningar má finna leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá á kynbótasýningu.
Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðu RML, www.rml.is, þegar þær eru klárar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.