NM 2018: Árangur Íslendinga til fyrirmyndar



Í lokaathöfninni fengu síðan tveir knapar svokölluð „feather price“ reiðmennskuverðlaun fyrir framúrskarandi og áferðafallega reiðmennsku. Báðir knaparnir voru íslenskir liðsmenn, þau Védís Huld Sigurðardóttir og Haukur Tryggvason. Haukur hafði einnig fyrr um dagin náð gulli í fjórgangi fullorðinna og silfri í tölti með sömu einkunn og sigurvegarinn en tapaði á sætaröðun dómara.

Liðið sendi 30 knapa með 34 hesta. Mótið var haldið á Margaretehof sem er staðsett í sunnarlega í Svíþjóð en þar er glæsileg aðstaða, tveir hringvellir, gott upphitunarsvæði, reiðhöll og dýralæknaaðstaða til fyrirmyndar. Það fór því einkar vel um hrossin okkar á meðan á mótinu stóð og gott samstarf var milli liðanna og starfsmanna mótsins. Margaretehof er í eigu Montan fjölskyldunnar sem einnig heldur út búgarði á Íslandi – Margrétarhof að Króki í Ásahreppi.
 
Árangur knapa á mótinu:
Gull:
– Védís Huld Sigurðardóttir og Krapi frá Fremri-Gufudal – fimmgangur unglinga, 250m skeið unglinga, gæðingaskeið unglinga, 100m skeið og samanlagðar fimmgangsgreinar unglinga
– Arnór Dan Kristinsson og Roði frá Garði – Tölt ungmenna og samanlagðar fjórgangsgreinar ungmenna
– Haukur Tryggvason og Orka frá Feti – Fjórgangur fullorðina

Silfur:
– Haukur Tryggvason og Orka frá Feti – Tölt fullorðina, Samanlagðar fjórgangsgreinar fullorðina
– Egill Már Þórsson og Dofri frá Steinnesi – Samanlagðar fimmgangsgreinar ungmenna, fimmgangur ungmenna
– Arnór Dan Kristinsson og Roði frá Garði – fjórgangur unmenna
– Hákon Dan Ólafsson og Snarpur frá Nýjabæ – 250m skeið ungmenna
– Sigurður V. Matthíasson og Fengur från Backome – A flokkur
– Sigurður Óli Kristinsson og Feykir frá Háholti – B flokkur  

Brons:
– Viktoría Eik Elvarsdóttir og Framsýn frá Oddhóli – Slaktaumatölt ungmenna
– Sigurður Sigurðarson og List frá Langstöðum – B flokkur
– Sigursteinn Sumarliðason og Snör frá Oddgeirshólum – Gæðingaskeið fullorðinna

Önnur verðlaunasæti:
– Finnur Bessi Svavarsson og Kristall frá Búlandi – Fjórða sæti í A flokki
– Selma Leifsdóttir og Darri frá Hjarðartúni – Fjórða sæti í unglingaflokki gæðingakeppni
– Glódís Rún Sigurðardóttir og Úlfur frá Hólshúsum – Fjórða sæti í fjórgangi ungmenna
– Askja Ísabel og Sjór frá Ármóti – Fjórða sæti í fimmgangi unglinga og fimmta sæti í gæðingaskeiði unglinga
– Viðar Ingólfsson og Agnar frá Ulbæk – Sjöunda sæti í B-úrslitum fimmgangs og
Fjórða sæti í samanlögðum fimmgangsgreinum fullorðinna
– Arnar Máni Sigurjónsson og Hlekkur frá Bjarnarnesi – Fimmta sæti í unglingaflokki gæðingakeppni
– Hákon Dan Ólafsson og Snarpur frá Nýjabæ – Fimmta sæti í 100m skeiði ungmenna
– Reynir Örn Pálmason og Spói frá Litlu-Brekku – Fimmta sæti í T2 slaktaumatölti fullorðina
– Valdís Björk Guðmundsdóttir og Skorri frän Fjalarstorp – Fimmta sæti í fimmgangi ungmenna
– Katla Sif Snorradóttir og Eiður frá Ármóti – Fimmta sæti í fjórgangi ungmenna
– Ylfa Guðrún Svavarsdóttir og Sálmur frá Ytra-Skörðugili – Fimmta sæti í ungmennaflokki gæðingakeppni
– Guðlaug Marín Guðnadóttir og Hekla frá Akureyri – Fimmta sæti í 100m skeiði
fullorðina
– Þórður Þorgeirsson og Baldur frá Skúfslæk – Tíunda sæti í B-úrslitum fimmgangs og Fimmta sæti í gæðingaskeiði fullorðinna og samanlögðum fimmgangsgreinum fullorðinna
– Teitur Árnason og Frami frá Hrafnsholti – Sjöunda sæti í B-úrslitum fimmgangs
– Sölvi Sigurðarson og Leggur frá Flögu – Sjötta sæti í B-flokki gæðinga

B-úrslit – niðurstöður
Fimmgangur fullorðina – Fulltrúar Íslands
07: Viðar Ingólfsson – Agnar frá Ulbæk 6,98
07: Teitur Árnason – Frami frá Hrafnsholt 6,98
10: Þórður Þorgeirsson – Baldur frá Skúfslæk 6,93

B- flokkur
08: Sigurður Sigurðarsson – List frá Langsstöðum 8,757
12: Tryggvi Björnsson – Bastían frá Þóreyjarnúpi 8,406
A-flokkur
08: Finnur Bessi Svavarsson – Kristall frá Búlandi 8,733

Þjálfarateymi Íslands á mótinu:
Sigurbjörn Bárðarson – Liðstjóri
Kristinn Skúlason – Formaður landsliðsnefndar
Arnar Bjarki Sigurðarson – Þjálfari
Sigurður V. Matthíasson – Þjálfari