Skráningu á sölusýningu í Spretti lýkur á miðnætti á morgun
Seinasta sölusýning sem haldin var í Spretti mættu u.þ.b.100 hross, 500 manns sátu í stúkunni og mörg þúsund fylgdust með í beinni útsendingu. Markmiðið er að búa til markaðsglugga og auðvelda fólki að koma hestum sínum á framfæri.
Bein útsending verður frá viðburðinum sem verður dreift víða á facebook og öðrum félagsmiðlum og mun efnið lifa þar inni þannig fólk getur nálgast upptökuna af sínum hesti að lokinni sýningu.
Verðflokkarnir verða
A – 0-750.000kr
B – 750.001-1.500.000kr
C – 1.500.001-3.000.000kr
D – 3.000.001kr+
Skráningargjald er 5000kr en meðlimir í félagi hrossabænda borga 3000 kr fyrir skráninguna.
Skráningar skulu sendast á netfangið hf@bondi.is Þar sem fram þarf að koma:
Stjörnumerkt (*) atriði verða að berast:
*IS númer
*Nafn knapa
*Nafn/sími/tölvupóstur umsjónarmanns
*Verðflokkur
Lýsing á hestinum max 50 orð
Vefsvæði (.is .net .com facebook instagram)
Logo
Skráningu lýkur á miðnætti þann 24. október!
Takið daginn frá því sýningar af þessu tagi njóta alltaf mikilla vinsælda.