Spennandi trippi á fjórða vetur



Það er áhugavert að sjá að 10 efstu hestarnir og 10 efstu hryssurnar í kynbótamati eru öll undan einungis 5 stóðhestum, þeim Ský frá Skálakoti, Arion frá Eystra-Fróðholti, Spuna frá Vesturkoti, Konsert frá Hofi og Óm frá Kvistum.
Með hæsta kynbótamatið í hópi hestanna er Naskur frá Hólum með 129 stig. Hann er undan Ský frá Skálakoti og Vilmundardótturinni Völvu frá Hólum. Er hann jafnframt eini geldingurinn í hópnum, en allir hinir hestarnir á listanum eru skráðir stóðhestar. Naskur er ræktaður af og í eigu Hólaskóla. Þorsteinn Björnsson, kennari við Hestafræðideildina á Hólum, segir Nask vera stóran og traustan efnishest sem gaman verður að sjá hvernig þróast áfram.

Þormar frá Prestsbæ kemur þar á eftir með 127 stig en hann er undan Konsert frá Hofi og Þoku frá Hólum, sem gerir hann sammæðra fyrrum heimsmethafa kynbótahrossa, Þórálfi frá Prestsbæ. Inga og Ingar Jensen eru eigendur hans og ræktendur. Þormar er afar litfagur, leirljósblesóttur og segir Þórarinn Eymundsson, þjálfari Þormars að það sé eitthvað við hann sem á eflaust eftir að heilla marga í framtíðinni. ,,Tamningin hefur gengið mjög vel með Þormar. Brokkið er ríkjandi með fallegu skrefi en það er einnig stutt í gang. Hann er með einstaklega léttbyggður, með fallegan háls og yfirvegaður efnishestur“ segir Þórarinn.

Arions og Álfadísarsonurinn Svartálfur frá Syðri-Gegnishólum er jafnframt á listanum með 125 í kynbótamati. Eru eflaust margir spenntir að sjá hvað verður úr þeim fola, enda Álfadís frá Selfossi í hópu bestu kynbótahryssna sem Ísland hefur alið og Arion frá Eystra-Fróðholti svo nýlega fallinn frá, sem var feikna vinsæll kynbótahestur.
Olil Amble, eigandi og ræktandi Svartálfs, segist hafa séð til hans í gegnum árin sem lofi góðu. Það er varla við öðru að búast en sá foli eigi eftir að koma vel út, en Álfadís á átta 1. verðlauna syni sem hafa einnig reynst afburða ræktunarhestar.

10 efstu hestarnir í kynbótamati fæddir 2015
Fæðingarnr.   Nafn   Uppruni   Faðir   Móðir   Kynbótamat

IS2015158302   Naskur frá Hólum   Skýr frá Skálakoti   Völva frá Hólum   129 Geldingur
IS2015101166   Þormar frá Prestsbæ   Konsert frá Hofi   Þoka frá Hólum   127
IS2015182060   Hraunar frá Varmá   Spuni frá Vesturkoti   Brák frá Hrauni   126
IS2015181912   Gandi frá Rauðalæk   Konsert frá Hofi   Garún frá Árbæ   126
IS2015158097   Vigri frá Bæ   Arion frá Eystra-Fróðholti   Þrift frá Hólum   126
IS2015187660   Svartálfur frá Syðri-Gegnishólum   Arion frá Eystra-Fróðholti   Álfadís frá Selfossi   125
IS2015184890   Börkur frá Strandarhjáleigu   Konsert frá Hofi   Bylgja frá Strandarhjáleigu   125
IS2015167175   Sjarmi frá Sauðanesi   Spuni frá Vesturkoti   Sóllilja frá Sauðanesi   125
IS2015157003   Forseti frá Sauðárkróki   Skýr frá Skálakoti   Grund frá Sauðárkróki   125
IS2015101051   Máni frá Lerkiholti   Spuni frá Vesturkoti   María frá Feti   125

Efsta hryssan er Álfamær frá Prestsbæ með 130 stig en hún er undan Spuna frá Vesturkoti og Þóru frá Prestsbæ, Orra- og Þokudóttur. Inga og Ingar Jensen eru eigendur og ræktendur hennar og líkt og flest hross í þeirra eigu er hún í þjálfun hjá Þórarni Eymundssyni.
Segir Þórarinn Álfamær vera alveg einstaklega gæfa; ,,Hún var forvitin allan uppvöxtinn. Hún er orðin reiðfær og fer um á öllum gangi en brokkar mest með mjög spyrnugóðu og löngu skrefi. Fetið verður afbragðs gangtegund trúi ég. Mér finnst einnig eins og að viljinn muni koma fljótt enda er hún einstaklega sterkleg miðað við aldur“.

Þórarinn kemur ekki að tómum kofanum varðandi hestakost í vetur, en hann er einnig eigandi annarrar hryssu á listanum, Silkisif frá Saurbæ. Er hún undan Arion frá Eystra-Fróðholti og Vilmundardótturinni Brigðu frá Brautarholti með 126 stig í kynbótamati. Silkisif er mjög lík móður sinni að mati Þórarinns; ,,Hún er með mjög létta og fíngerða byggingu, með mjög hátt settan háls. Fallegt fótatak og gangur laflaus og mjúkur, rýmislegur. Viljinn strax kominn og trúlega þarf ég að passa að hún geri ekki of mikið og fari framúr sér“. 

Jafnframt er dóttur Hamingju frá Hellubæ og Konserts frá Hofi á listanum, ónefnd frá Hellubæ. Er hún í eigi Olil Amble og Bergs Jónssonar á Syðri-Gegnishólum, en þau fengu að halda Hamingju eftir LM2014. Flestir hestamenn ættu að muna eftir Hamingju frá Hellubæ, en hún vann 4 vetra flokk hryssna á Landsmóti 2014.

Það verður einstaklega gaman að fylgjast með á næstu árum hvaða hross á þessum lista muni koma til með að sýna sig og sanna og verða íslenskri hrossarækt til framdráttar í framtíðinni.

10 efstu hryssurnar í kynbótamati fæddar 2015
Fæðingarnr.   Nafn   Uppruni   Faðir   Móðir   Kynbótamat

IS2015201167   Álfamær frá Prestsbæ   Spuni frá Vesturkoti   Þóra frá Prestsbæ   130
IS2015258301   Íshildur frá Hólum   Skýr frá Skálakoti   Storð frá Hólum   128
IS2015287640   Brenna frá Laugarbökkum   Spuni frá Vesturkoti   Blökk frá Laugarbökkum   126
IS2015257781   Silkisif frá Saurbæ   Arion frá Eystra-Fróðholti   Brigða frá Brautarholti   126
IS2015235941   Nn frá Hellubæ   Konsert frá Hofi   Hamingja frá Hellubæ   126
IS2015288670   Harpa frá Ljósafossi   Ómur frá Kvistum   Hansa frá Ljósafossi   125
IS2015284980   Sara frá Vindási   Spuni frá Vesturkoti   Gjöf frá Vindási   125
IS2015284871   Dimma frá Hjarðartúni   Spuni frá Vesturkoti   Dögg frá Breiðholti, Gbr.   125
IS2015237726   Eik frá Miðhrauni   Spuni frá Vesturkoti   Álfadrottning frá Austurkoti   125
IS2015287660   Nn frá Syðri-Gegnishólum   Konsert frá Hofi   Álfastjarna frá Syðri-Gegnishólum   124